Viðskiptastjóri í samfélagsdeild
PIPAR\TBWA auglýsir eftir duglegum og drífandi viðskiptastjóra í samfélagsdeild. Umsækjendur þurfa bæði að geta unnið sjálfstætt og tekið þátt í hópastarfi og krefjandi verkefnum í líflegu umhverfi. Verkefnin eru fyrsta og fremst að afla viðskipta, selja lausnir samfélagsdeildar og halda utan um verkefni deildarinnar og kúnnatengsl.
Hæfniskröfur:
\ Háskólamenntun í viðskiptum eða markaðsfræðum
\ Góð þekking á samfélagvefjum
\ Góð reynsla af markaðs- og sölustörfum
\ Jákvæðni, gott skap og hæfni í mannlegum samskiptum
Hjá PIPAR\TBWA starfa 28 manns. Stofan er sú fyrsta á landinu sem hefur sérdeild samfélagsvefja, en þar starfa þegar fimm sérfræðingar. PIPAR\TBWA er hluti af TBWA sem er ein af framsæknustu samstarfskeðjum auglýsingastofa í heiminum. Þar starfa um 12.000 manns á 258 stofum í 77 löndum.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um í gegnum Facebook síðu PIPARTBWA https://www.facebook.com/pipartbwa?sk=app_196768947096993