Verkefnastjóri í Regluvörslu Íslandsbanka

Íslandsbanka 26. Sep 2024 Fullt starf

Íslandsbanki leitar að skipulögðum, metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að gegna stöðu verkefnastjóra hjá Regluvörslu bankans. Viðkomandi mun leiða stafræn umbreytingarverkefni sviðsins ásamt öðrum spennandi verkefnum.

Ef þú hefur brennandi áhuga á starfsemi fjármálafyrirtækja, býrð yfir góðri reynslu af verkefnastjórnun og áhuga á starfi Regluvörslu, þá gætir þú verið einstaklingurinn sem við leitum að. Þú munt vinna þvert á ábyrgðarsvið teymisins, með þróunar- og vöruteymum, taka ábyrgð á verkefnalista (e. backlog) og vinna með hagaðilum vítt og breitt um bankann.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða starfræn umbreytingarverkefni Regluvörslu
  • Greina og meta tækifæri til að bæta stafræna ferla innan regluvörslu
  • Styðja forstöðumenn við þróun mælaborða til eftirlits regluvörslu
  • Utanumhald um gerð verkáætlana og yfirsýn með framgangi
  • Verkefnastjórn minni og stærri verkefna
  • Ritstýra skýrslugjöf Regluvörslu, þ.m.t. ársskýrslu
  • Gæðamál
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskipta, verkfræði eða tölvunarfræði
  • Reynsla af verkefnastjórnun, helst í fjármálageiranum eða tengdum iðnaði
  • Reynsla af vinnu með stafrænar lausnir, nýsköpun og tækniþróun
  • Frábær skipulagshæfileikar, samskipta- og samstarfsfærni
  • Skipulögð og lausnamiðuð hugsun með áherslu á skilvirka framkvæmd
  • Hæfni til að miðla efni í ræðu og riti bæði á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar

Frekari upplýsingar um starfið veita Barbara Inga Albertsdóttir, framkvæmdastjóri Regluvörslu (barbara.inga.albertsdottir@islandsbanki.is) og Guðlaugur Örn Hauksson, ráðningarstjóri (gudlaugurh@islandsbanki.is).

Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Frekari upplýsingar um starfið veita Barbara Inga Albertsdóttir, framkvæmdastjóri Regluvörslu (barbara.inga.albertsdottir@islandsbanki.is) og Guðlaugur Örn Hauksson, ráðningarstjóri (gudlaugurh@islandsbanki.is).