Verkefnastjóri hjá Stafrænu Íslandi
Fjármála og efnahagsráðuneytið leitar að verkefnastjóra til að leiða umbreytingarferli í stafrænni opinberri þjónustu. Verkefnastjóri hjá Stafrænu Íslandi vinnur náið með stofnunum ríkisins að því að breyta verkferlum og bæta þjónustu með innleiðingu stafrænna lausna.
Stafrænt Ísland er starfseining innan fjármála-og efnahagsráðuneytisins. Hlutverk hennar er að vinna með ráðuneytum, stofnunum og öðrum opinberum aðilum að því að efla stafræna þjónustu við almenning og tryggja þannig skýr, einföld og hraðvirk samskipti. Stærsta verkefni Stafræns Íslands er þróun þjónustugáttarinnar Ísland.is.
Leitað er að drífandi sérfræðingi sem á auðvelt með að fá fólk í lið með sér og ná fram því besta í öðrum. Starfið felur í sér greiningarvinnu, ráðgjöf og innleiðingu á stafrænum lausnum.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
- Verkefnastjórn stafrænna umbreytingarverkefna.
- Ráðgjöf, fræðsla og samskipti við opinbera aðila.
- Greiningarvinna, endurskoðun ferla og verklags.
- Innleiðing á stafrænum lausnum.
- Breytingarstjórnun og forgangsröðun verkefna.
- Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð Stafræns Íslands.
Menntunar og hæfnikröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Mikil færni í mannlegum samskiptum, jákvætt hugarfar, þjónustulund og frumkvæði.
- Reynsla og þekking á breytingastjórnun og innleiðingu á stafrænum lausnum.
- Færni til að tileinka sér nýjungar og miðla þekkingu.
- Þekking á sjálfsafgreiðsluferlum og stafrænni umbreytingu.
- Góð skipulagshæfni, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
- Metnaður til að ná árangri, vilji til breytinga og geta til að leiða framfarir.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði.
Sækja um starf
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfið er tímabundið til tveggja ára.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Um fullt starf er að ræða. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. gildandi reglur um auglýsingar lausra starfa.
Umsóknarfrestur er til og með 18. janúar nk.
Nánari upplýsingar veitir Andri Heiðar Kristinsson(andri.kristinsson@fjr.is) og Ragnheiður Valdimarsdóttir í fjármála-og efnahagsráðuneytinu (ragnheidur.valdimarsdottir@fjr.is)