Verkefnastjóri á rafmagns- eða byggingasviði
Vegna aukinna verkefna óskar Mannverk eftir að ráða öfluga einstaklinga sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni og skemmtilegar áskoranir með góðri liðsheild.
Starfssvið:
– Verkefnastjórnun og rekstur umfangsmikilla verkefna
– Samræming hönnunar og tæknilegra útfærslna
– Kostnaðar- og gæðaeftirlit
Menntunar- og hæfniskröfur:
– Menntun á sviði rafmagns-, tækni- eða byggingaverkfræði
– Farsæl starfsreynsla af krefjandi verkefnum
– Árangursrík reynsla af verkefnastjórnun og góð tölvukunnátta
– Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
– Metnaður til að ná árangri í starfi
– Góð kunnátta í íslensku og ensku
Mannverk ehf. var stofnað á vordögum 2012. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróunarverkefnum, stýriverktöku, verkefna- , hönnunar- og byggingastjórnun ásamt almennri framkvæmdaráðgjöf. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu þess: www.mannverk.is.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní nk. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
Sækja um starf