Verkefnastjóri
Við hjá Sendiráðinu viljum bæta við okkur metnaðarfullum og skemmtilegum verkefnastjóra / vörustjóra sem vill vinna hjá framsæknu fyrirtæki í fjölbreyttum og spennandi verkefnum.
Sendiráðið skapar vörur sem þúsundir einstaklinga nota á hverjum degi og hefur þannig áhrif á stóran hluta samfélagsins, því teljum við nauðsynlegt að þeir sem komi að okkar verkefnum hafi ástríðu fyrir því sem þeir taka sér fyrir hendur.
Starf verkefnastjóra hjá Sendiráðinu felst í því að:
- Leiða teymi forritara, hönnuða og annara hagsmunaraðila
- Sjá um innleiðingu verkefna (e. onboarding)
- Setja upp verkáætlanir og tímalínur.
- Almenn samkipti við viðskiptavini t.d. upplýsingagjöf varðandi stöðu verkefna
- Leiða teymi og samstarfsaðila í grunngreiningum og æfingum
- Tryggja framgang og árangur í verkefnum
Menntun og hæfniskröfur:
- Marktæk reynsla af verkefnastjórnun
- Reynsla af verkefnum sem tengjast þróun stafrænna lausna
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Lágmark 2 ára starfsreynsla í sambærilegu starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Menntun sem nýtist í starfi
Sendiráðið er hugbúnaðarstofa upp á Höfðabakka sem er troðfull af sköpunarkrafti og skemmtilegu fólki sem samanstendur af hönnuðum, forriturum og ráðgjöfum sem hafa alhliða þekkingu á hugbúnaðarþróun og starfrænum verkefnum.
Sækja um starf
Best er að senda ferilskrá og aðrar upplýsingar á hrafn@sendiradid.is fyrir föstudaginn 25. september