Vef- og samfélagsmiðlagúrú
Háskólinn í Reykjavík leitar að dugmiklum og drífandi einstaklingi í starf verkefnistjóra fyrir vefsíðu HR og samfélagsmiðla. Verkefnisstjóri vinnur náið með vefstjóra, starfsmönnum markaðs- og samskiptasviðs, öðrum stoðsviðum og akademískum deildum háskólans, að gerð og miðlun efnis á vefsíðu Háskólans í Reykjavík og á samfélagsmiðlum. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á vefmálum og samfélagsmiðlum og metnað til að læra nýja hluti.
STARFSSVIÐ:
Fjölbreytt vinna við vefsíðu HR og samfélagsmiðla, m.a.:
– Uppfærsla og innsetning efnis á vef HR
– Gerð samfélagsmiðlastefnu
– Prófanir og mælingar á vef HR
– Vinna við efnismiðlun, auglýsingar og mælingar á samfélagsmiðlum HR
– Samskipti við deildir og svið vegna vefmála
– Þátttaka í ytri og innri markaðssetningu HR
HÆFNISKRÖFUR:
- Vandvirkni og sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af notkun fjölbreytts hugbúnaðar, gjarna af vefumsjónarkerfum
- Áhugi á vefstjórn og verkefnastjórnun
- Áhugi á markaðsmálum
- Þekking á samfélagsmiðlum
- Áhugi og geta til að læra tæknilega hluti
- Auga fyrir hönnun og framsetningu efnis á vef
- Ritfærni á íslensku og ensku
Sækja um starf
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Sigurðsson forstöðumaður markaðs- og samskiptasviðs, (eirikursig@ru.is) og Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, (sigridureg@ru.is). Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík, radningar.hr.is. Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2018.
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir háskólans eru fjórar: Lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3700 í fjórum deildum og starfa um 240 fastir starfsmenn við háskólann auk fjölda stundakennara.