Þróunarstjóri stafrænna lausna
.
Viltu leggja þitt af mörkum í stafrænni vegferð Reykjavíkurborgar?
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að metnaðarfullum þróunarstjóra stafrænna lausna í deild kerfislausna- og hugbúnaðarþróunar. Þróunarstjóri leiðir teymi sérfræðinga og vinnur náið með öðrum leiðtogum á sviðinu að uppbyggingu, yfirsýn og framþróun hugbúnaðarþróunarferla. Í deildinni eru um 50 öflugir sérfræðingar samanstanda af starfsmönnum og verktökum.
Sem þróunarstjóri munt þú …
-
Taka þátt í að leiða og móta stefnu hugbúnaðarþróunar í stafrænni vegferð Reykjavíkurborgar
-
Hafa yfirsýn yfir framgang verkefna teyma
-
Innleiða agile verklag
-
Móta og þróa vinnuferla og gæðamál í hugbúnaðarþróun
-
Leiða og styðja leiðtoga þróunarteyma að vinna eftir settum ferlum
-
Leiða teymisuppbyggingu og mönnun teyma
-
Sjá til þess að miðla viðeigandi upplýsingum til þróunarteyma
-
Byggja upp og hlúa að samskiptum við birgja, aðra hagaðila og samstarfsaðila
-
Taka þátt í greiningarfasa verkefna
-
Taka þátt í samráðshópum og teymisstarfi
-
Taka þátt í vali á verktökum og útboðsgerð á verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Þekking á starfsemi Reykjavíkurborgar er kostur
-
Agile próf eða víðtæk reynsla við innleiðingu og/eða teymisstýringu í Agile aðferðafræði
-
Þekking og reynsla af ferlum og aðferðafræði hugbúnaðarþróunar og/eða verkefnastjórnunar
-
Reynsla af teymisstjórnun er kostur
-
Mikill áhugi á stafrænum lausnum
-
Þekking á vefþróun æskileg (React, Typescript)
-
Framúrskarandi leiðtogahæfni og hæfni í mannlegum samskiptum
-
Hæfni til greiningar og miðlun upplýsinga
-
Drifkraftur, frumkvæði og metnaður
-
Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti
-
Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Sækja um starf
Þjónustu- og nýsköpunarsvið er fyrsta flokks vinnustaður þar sem góð liðsheild og virðing einkennir menninguna. Við leggjum mikið upp úr faglegu umhverfi þar sem frumkvæði og þori er fagnað. Verkefnin eru krefjandi og skemmtileg og enn betra er að þau stuðla að því að einfalda og bæta líf borgarbúa og starfsfólks borgarinnar.
Við bjóðum upp á:
Fyrsta flokks vinnustað og vinnuumhverfi
Tækifæri til að móta og þróa starfið og verkefnin
Verkefni sem stuðla að því að einfalda og bæta líf starfsfólks og borgarbúa
Krefjandi og skemmtileg verkefni
Sálrænt öryggi og skapandi menningu
Góða liðsheild og góð samskipti
Samkennd og virðing
Þekkingarumhverfi
Áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika
30 daga í sumarleyfi
36 stunda vinnuviku
Sveigjanleika á vinnutíma
Heilsu- og samgöngustyrk
Sundkort
Menningakort
Þjónustu- og nýsköpunarsvið fékk það verkefni með sérstakri fjármögnun að hraða stafrænum umbreytingum til að draga úr umhverfisáhrifum, skipuleggja græn hverfi og auka framboð stafrænna lausna með notendamiðaðri nálgun. Þetta hlutverk er hluti af þeirri vegferð að bregðast við kröfu og þörfum borgarbúa á stafrænum lausnum og auknu aðgengi að gögnum og bættri rafrænni þjónustu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 16. apríl n.k. Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldór Gíslason deildarstjóri kerfislausna og hugbúnaðarþróunar í gegnum tölvupóstfangið halldor.gislason@reykjavik.is. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
- Starfsferilsskrá
- Kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga og hæfni í starfið.
Reykjavíkurborg er skapandi og metnaðarfullur vinnustaður ásamt því að vera sá stærsti á Íslandi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.