Þjónusta og ráðgjöf
Um er að ræða starf á þjónustu og ráðgjafarsviði Stefnu. Leitað er að samviskusömum og metnaðarfullum einstaklingi með mikinn drifkraft og frumkvæði til að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf í vefmálum. Viðkomandi þarf að sjálfsögðu að hafa frábæra samskiptahæfni. Starfsstöð getur hvort sem er verið á Akureyri eða í Kópavogi.
Starfssvið:
- Símsvörun og tölvupóstur
- Úrlausn verkbeiðna
- Notendaaðstoð
- Prófanir á nýjum lausnum
- Sala og ráðgjöf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Er lausnamiðuð/aður og sýnir frumkvæði
- Hefur áhuga á tækninýjungum
- Vill áskoranir í starfi og starfa með skemmtilegu og öflugu fólki
- Tilbúin/nn að taka ábyrgð
Stefna hugbúnaðarhús er í fremstu röð í þjónustu og rekstri veflausna á Íslandi. Hátt þekkingarstig og verðmæt viðskiptasambönd spila stórt hlutverk. Mikil áhersla er lögð á velferð starfsmanna, góðan starfsanda og hvetjandi og skemmtilegt starfsumhverfi, m.a. með því að veita starfsmönnum tækifæri til að vaxa með þjálfun og símenntun. Stefna leggur áherslu á vönduð og fagleg vinnubrögð og hefur ávallt þarfir viðskiptavina í fyrirrúmi.
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur Nánari upplýsingar um starfið veitir Matthías Rögnvaldsson, matthias@stefna.is. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu www.stefna.is/umsokn
Umsóknarfrestur er til og með 28. september nk.