Teymisstjóri í hugbúnaðarþróun
Vörður leitar eftir leiðtoga til að byggja upp öflugt teymi sérfræðinga sem leysir áhugaverð og flókin verkefni og smíðar úthugsaðar hugbúnaðar- og tæknilausnir. Hlutverk teymisins er að þróa nútímalegar hugbúnaðarlausnir sem hafa áhrif á og breyta upplifun viðskiptavina af samskiptum sínum við félagið.
Starfssvið;
- Byggja upp og leiða öflugt teymi hugbúnaðarhönnuða í samvinnu við forstöðumann upplýsingatæknideildar
- Forgangsraða verkefnum inn í teymi og vinna að framgangi þeirra
- Þátttaka í þjálfun og þróun þekkingar innan félagsins
- Innleiða og vinna að umbótum og bestun ferla í tengslum við hugbúnaðargerð
- Þátttaka í þróunarteymum og samvinna við aðrar einingar.
- Forritun á bakendum hinna ýmsu hugbúnaðarlausna félagsins
Menntunar og hæfniskröfur;
- Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Drifkraftur og hæfni í teymis — og verkefnavinnu
- Reynsla af stjórnun eða stýringu teyma eða verkefna er kostur
- Reynsla í hugbúnaðargerð.
- Háskólamenntun eða önnur menntun á sviði tölvunarfræði sem nýtist í starfi
Vörður er ört stækkandi tryggingafélag með um 100 starfsmenn og 65 þúsund viðskiptavini um land allt. Félagið býður upp á nútímalegt vinnuumhverfi og byggir á umbótamenningu þar sem áhersla er lögð á framsækna hugsun, sveigjanleika, árangur, samfélagslega ábyrgð, vellíðan og starfsánægju.
Vörður er Fyrirtæki ársins 2019 hjá VR.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Scheving Thorsteinsson, forstöðumaður, í netfanginu sverrir@vordur.is
Vörður er jafnlaunavottað fyrirtæki og hvetjum við konur jafnt sem karla til að sækja um.
Sækja um starf
Tekið er á móti umsóknum á heimasíðu félagsins www.vordur.is
Umsóknarfrestur: 01.09.2019