Teymisleiðtogi í hugbúnaðarþróun

Andes og Prógramm 14. Oct 2024 Fullt starf

Andes og Prógramm leita að drífandi aðila til að leiða teymi í hugbúnaðarþróun. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, hugsað í lausnum og stýrt verkefnum á leiðarenda.

Andes og Prógramm eru systurfélög sem saman mynda eitt af öflugri hugbúnaðarhúsum landsins. Við trúum því að við getum aukið skilvirkni með sérfræðiþekkingu og vali á réttum verkfærum fyrir hvert og eitt verkefni. Við erum leiðandi í stafrænni umbreytingu og sérsvið okkar eru skýjalausnir, sjálfvirkni, innviðir og flóknari hugbúnaðarlausnir. Vinnustaðurinn er frábær vettvangur fyrir þá sem vilja þróast áfram á sviði upplýsingatækni og taka þátt í krefjandi, skapandi og skemmtilegum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða teymi hugbúnaðarsérfræðinga og tryggja framúrskarandi árangur
  • Skipuleggja og fylgja eftir þróunarverkefnum, frá þarfagreiningu til afhendingar
  • Þróun upplýsingakerfa fyrir stærri stofnanir og fyrirtæki
  • Sjálfvirknivæðing vinnuferla, skjölun og uppsetning á stafrænum innviðum
  • Virk samskipti við viðskiptavini til að tryggja að lausnir mæti þeirra þörfum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi, sérstaklega á sviði hugbúnaðarþróunar
  • A.m.k. fimm ára reynsla af hugbúnaðarþróun
  • Reynsla af vöru- og/eða verkefnastjórnun í hugbúnaðarverkefnum
  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
  • Áhugi á að tileinka sér nýja tækni og þróast í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli

Fríðindi í starfi

  • Kaupréttaráætlun
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Mötuneyti
  • Öflugt starfsmannafélag

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

– Umsóknarfrestur er til og með 21. október 2024

– Öllum umsóknum þarf að fylgja ferilskrá

– Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál

– Öllum umsóknum verður svarað