Tæknimaður
Vegna aukinna verkefna á þjónustusviði IcePhone leitum við að traustum tæknimanni til framtíðarstarfa við þjónustu og viðgerðir.
Umsækjandi sé laghentur og hafi þjónustulund.
Búi yfir frumkvæði og sjálfstæðum vinnubrögðum.
Menntun sem nýtist í starfi, t.d. rafvirkjun, rafeindafræði eða vélvirkjun.
Haldbær þekking á snjalltækjum og tölvubúnaði er krafa.
Áhugasamir, sem vilja koma til liðs við öflugt teymi og taka þátt í að efla tækniþjónustu í vaxandi fyrirtæki, sendi umsókn með vandaðri starfsferilsskrá og mynd á vidgerdir@icephone.is merkt Tæknimaður.
Okkar markmið er að veita hágæða þjónustu og upplýsingu til viðskiptavina okkar og að sama skapi leggjum við mikla áherslu á fagleg vinnubrögð. IcePhone er reyklaus vinnustaður þar sem áhersla er lögð á heilbrigt og öruggt starfsumhverfi.
Umsóknarfrestur er til 21. júlí 2017 og er fyllsta trúnaðar gætt.
Sækja um starf
Áhugasamir, sem vilja koma til liðs við öflugt teymi og taka þátt í að efla tækniþjónustu í vaxandi fyrirtæki, sendi umsókn með vandaðri starfsferilsskrá og mynd á stefan@icephone.is merkt Tæknimaður.