Tækni- og viðskiptastjóri (CTO)
Frumkvöðull óskast
Kalor Metrics leitar að öflugum frumkvöðli til starfa.
Hæfniskröfur:
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Æskilegt væri að menntun sé á sviði tölvunarfræði, hugbúnaðar-, hátækni- eða rafmagnsverkfræði.
-
Reynsla og þekking á vöruþróun og sölumennsku æskileg.
-
Grunnþekking á myndgreiningu, tauganetum og hugbúnaðarþróun.
-
Framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfileikar.
-
Mikið frumkvæði og sjálfstæði.
Nýr starfsmaður mun sinna starfi tækni- og viðskiptastjóra (CTO) Kalor Metrics og er ætlað að leiða þróun og sölu á nýjum vörum fyrirtækisins.
Kalor Metrics er nýsköpunarfyrirtæki á sviði hátækni, sem sérhæfir sig í myndgreiningarlausnum (e: Machine vision) og öðrum hugbúnaðarlausnum fyrir iðnfyrirtæki. Kalor Metrics er dótturfélag EFLU.
Umsókn, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skal berast rafrænt í gegnum heimasíðu EFLU, www.efla.is/laus-storf, fyrir 31. júlí næstkomandi.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Umsóknir eru geymdar í 6 mánuði, nema umsækjandi óski eftir því að umsókn verði eytt fyrr.
Nánari upplýsingar 412 6000 eða job@efla.is
Umsókn, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skal berast rafrænt í gegnum heimasíðu EFLU, www.efla.is/laus-storf, fyrir 31. júlí næstkomandi.