Sumarstarf fyrir háskólanema – Sala og markaðsmál
Tulipop óskar eftir starfskrafti/háskólanema í sumarstarf til að vinna við sölu og markaðssetningu á Tulipop á erlendri grundu. Verkefnin eru m.a. markaðsrannsóknir, sending sýnishorna og eftirfylgni, markaðssetning á Netinu, m.a. í gegnum Facebook-, Twitter-, og blogg-síðu fyrirtækisins og önnur sölu- og markaðsverkefni, s.s. vinna að undirbúningi söluferða og sýninga erlendis. Tulipop er hönnunar- og hugmyndafyrirtæki, stofnað í byrjun árs 2010. Tulipop er til húsa í frumkvöðlasetrinu Kvosinni. Tulipop framleiðir litríkar og skemmtilegar vörur þar sem óttalega krúttlegar fígúrur eru í lykilhlutverki. Vörur Tulipop hafa hlotið afar góðar viðtökur og eru seldar í 19 hönnunarverslunum á Íslandi, í Svíþjóð og Bandaríkjunum.
Starfið er hluti af átaksverkefni Vinnumálastofnunar fyrir námsmenn og atvinnuleitendur, sjá nánar á www.vmst.is.
Sótt er um starfið hér: http://www.vinnumalastofnun.is/sumarstorf/jobsview.aspx?pkjobid=1304.
Allar nánari upplýsingar veitir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Tulipop, í síma 857 7761, eða í gegnum tölvupóst, helga@tulipop.com.