Success Manager
Vínber eru sérfræðingar í vefverslunum og okkar markmið er að hjálpa viðskiptavinum okkar að selja meira á netinu.
Við óskum eftir framúrskarandi starfsfólki í okkar sérvalda hóp.
Hæfniskröfur
Reynsla af markaðsstarfi, samfélagsmiðlum, vefstjórn eða rekstur vefverslunar er skilyrði ásamt brennandi áhuga á vefverslun.
Ábyrgðarsvið
- Viðskiptatengsl
- Samskipti við hönnuði, forritara o.fl.
- Innleiðing lausna
- Árangursmælingar
- Sjálfstæð og skapandi hugsun og lausnir
Þetta gæti verið starfið fyrir þig ef:
- þú ert fljót/ur að setja þig inn í nýja hluti
- þú brennur fyrir því að læra sífellt meira, meira í dag en í gær
- þú elskar að takast á við nýjar áskoranir
Við lofum góðum starfsanda, sveigjanlegum vinnutíma, skemmtilegum viðskiptavinum og samkeppnishæfum launum.
Sæktu um ef þú vilt taka þátt í að móta fremstu vefverslanir landsins.
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á vinber@vinber.is