Sérfræðingur í veflausnum
Vegna aukinna verkefna leitum við nú að sérfræðingi í veflausnum og rekstri vefhýsinga.
Helstu verkefni eru að þjónusta viðskiptavini og samstarfsaðila ásamt því að taka þátt í almennum rekstri hýsingarumhverfis TACTICA sem rekið er undir nafninu Hýsingar.is og er einn af stærri aðilum á hýsingarmarkaðnum í dag.
TACTICA sinnir ekki vefsíðugerð en vinnur náið með vefstofum ýmist í þjónustu, ráðgjöf eða almennri aðstoð.
Mikil áhersla er lögð á hæfni viðkomandi til þess að vinna með samstarfsaðilum og viðskiptavinum og tryggja að öllum verkefnum sé skilað á farsælan og faglegan hátt.
Viðkomandi þarf að hafa góðan heildarskilning á þeim kerfum sem unnið er í og því nauðsynlegt að hafa bakgrunn í upplýsingatækni og grunnskilning á vefforritun ásamt mjög góðum skilningi á WordPress.
Framkoma og samskiptahæfni eru lykilatriði í þessu starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Samskipti og ráðgjöf við viðskiptavini og samstarfsaðila
- Greining vandamála sem geta komið upp á vefsvæðum notenda
- Aðstoð og vinna með samstarfsaðilum TACTICA
- Samskipti við þjónustuaðila og birgja
- Uppsetning og umsýsla á sýndarþjónum viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist starfi.
- Reynsla af hugbúnaðar / vefstörfum er mikill kostur.
- Mjög góð tölvukunnátta og skilningur á upplýsingatækni skilyrði
- Kerfi sem æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af: WHM/Cpanel, DNS, WordPress, Linux og Windows server
- Mjög gott vald á íslensku og ensku, færni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum er nauðsynleg
TACTICA er vaxandi fyrirtæki sem var stofnað árið 2012 og sérhæfir sig í heildarlausnum upplýsingatæknimála fyrir minni og meðalstór fyrirtæki ásamt því að reka eitt stærsta hýsingarfyrirtæki landsins Hýsingar.is
Einnig erum við leiðandi á sviði vöruumsýslu og samþættingarlausna.
Sækja um starf
Umsækjendur eru beðnir um að láta ferilskrár og kynningarbréf fylgja með. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsækjendum verður svarað.