Sérfræðingur í upplýsingatækni
LV leitar að öflugum liðsmönnum á upplýsingatæknisvið sjóðsins.
Á upplýsingatæknisviði LV starfar samhentur hópur sérfræðinga við hugbúnaðarþróun. LV á og rekur eigin upplýsingakerfi sem sérhæfð eru fyrir starfsemi lífeyrissjóðins. Kerfin eru í stöðugri þróun og leitast sjóðurinn við að nota nýjustu tækni við hugbúnaðargerð á hverjum tíma.
Snjöll þjónusta er eitt af fimm leiðarljósum stefnu LV. Þannig miða tæknilegir innviðir sjóðsins að því að veita snjalla þjónustu út frá þörfum sjóðfélaga og launagreiðenda. Á síðasta ári voru lífeyrisþegar um 22 þúsund, iðgjaldagreiðendur voru um 9 þúsund og heildarfjöldi sjóðfélaga var um 178 þúsund.
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingum til að slást í hópinn og takast á við krefjandi og spennandi verkefni sem framundan eru.
Helstu verkefni:
- Hönnun og smíði hugbúnaðar
- Innleiðing stafrænna lausna fyrir sjóðfélaga og launagreiðendur
- Viðhald á viðskiptahugbúnaði sjóðsins
- Þróun og innleiðing úrbóta og nýrra lausna
Menntunar og hæfniskröfur:
- Menntun á sviði tölvunarfræði
- Reynsla af hugbúnaðarþróun, svo sem:
- Reynsla af framendaforritun
- Reynsla af CI/CD pipelines fyrir Azure Kubernetes þjónustur
- Færni í forritun (Java, C# og Typescript/Javascript)
- Þekking á gagnagrunnum og SQL fyrirspurnamálinu
- Sjálfstæði í störfum, frumkvæði og þjónustulund
- Geta til að vinna vel í hóp
Sækja um starf
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sótt er um með því að senda umsókn á netfangið thor.egilsson@live.is