Sérfræðingur í stafrænum lausnum og greiðslum

Íslandsbanka 20. Feb 2025 Fullt starf

Við leitum að framsæknum og drífandi einstaklingi í stafrænum lausnum og greiðslum á Viðskiptabankasvið Íslandsbanka. Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur, kraftmikill, sjálfstæður og tilbúinn að láta til sín taka. Í starfinu felast fjölbreytt verkefni tengd stafrænni vegferð, greiðslum og fleiru í samvinnu við ýmsa hagaðila og vöruteymi innan bankans. 

Viðskiptabanki veitir vaxandi hópi lítilla og meðalstórra fyrirtækja um land allt alhliða fjármálaþjónustu. Viðskiptavinir okkar standa undir kraftmikilli verðmætasköpun í öllum atvinnugreinum og eru mikilvægur þáttur í að tryggja efnahagslegan og félagslegan stöðugleika.

Helstu verkefni:

  • Taka þátt í og móta stafræna vegferð Viðskiptabanka
  • Þróa og viðhalda kerfum og ferlum sem tengjast innlendum og erlendum greiðslum
  • Þátttaka í nýsköpun og stefnumótun
  • Koma auga á og þróa nýjar vörur og lausnir
  • Samstarf við aðrar einingar bankans, viðskiptavini og haghafa

Hæfniskröfur:

  • Leiðtogahæfni og framúrskarandi samskiptafærni
  • Mikill metnaður, nýjungagirni og áhugi á stafrænni þjónustu, greiðslum og ferlum
  • Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Þekking á fjármálaumhverfi og hugbúnaðarþróun æskileg en ekki nauðsynleg
  • Mikil reynsla af teymisvinnu og að leiða verkefni

Frekari upplýsingar:

Frekari upplýsingar veita Marteinn Már Guðgeirsson forstöðumaður, marteinn.mar.gudgeirsson@islandsbanki.is, og Guðlaugur Örn Hauksson ráðningarstjóri, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is

Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Frekari upplýsingar veita Marteinn Már Guðgeirsson forstöðumaður, marteinn.mar.gudgeirsson@islandsbanki.is, og Guðlaugur Örn Hauksson ráðningarstjóri, gudlaugur.orn.hauksson@islandsbanki.is