Sérfræðingur í stafrænum innviðum

Seðlabanki Íslands 8. Jan 2025 Fullt starf

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan og reynslumikinn sérfræðing með brennandi áhuga á rekstri upplýsingatæknilausna.

Um er að ræða starf í deild innviða og öryggis á sviði upplýsingatækni. Innviðateymi deildarinnar ber ábyrgð á framþróun, högun, rekstri og skjölun tæknilegra kjarnainnviða Seðlabankans. Til kjarnainnviða teljast m.a. skýjaumhverfi, gagnaver, eldveggir og netlag, sýndar-og gámaumhverfi, diskageymslur og auðkennis-, nafna- og skilríkjaþjónusta. Teymið leggur áherslu á sjálfvirknivæðingu í störfum sínum m.a. með rekstri innviða í formi kóða til að tryggja stöðugt og öruggt stafrænt starfsumhverfi Seðlabankans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hönnun, innleiðing, samþætting og rekstur skýjaþjónustu
  • Hönnun, innleiðing, samþætting og rekstur tæknilegra kjarnainnviða
  • Vöktun og viðbrögð við rekstrarfrávikum
  • Framþróun tækniumhverfis og skjölun þess

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Markverð reynsla af rekstri skýjaumhverfis
  • Reynsla og þekking á innviðarekstri upplýsingatæknilausna
  • Þekking á rekstri innviða í kóða (e. infrastructure as a code) er kostur
  • Þekking á öryggismálum tengdum tæknilegum kjarnainnviðum og skýjalausnum er kostur
  • Vottanir á sviði kerfisstjórnunar stýrikerfa, netkerfa og/eða skýjalausna er kostur
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og góð hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum
  • Frumkvæði, skapandi hugsun, jákvæðni, skipulag og metnaður í starfi
  • Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar um starfið veita Víðir Kristófersson, öryggisstjóri og forstöðumaður deildar innviða og öryggis á upplýsingatæknisviði (vidir.kristofersson@sedlabanki.is) og Árni Ragnar Stefánsson, mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar nk.

Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild í metnaðarfullu og hvetjandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á sveigjanleika, fagmennsku og þekkingu. Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.