Sérfræðingur í Power Platform sjálfvirknilausnum
Við leitum að aðila í starf automation engineer á upplýsingatæknisviði. Viðkomandi mun tilheyra þverfaglegu teymi sem hefur yfirumsjón með sjálfvirknilausnum innan fyrirtækisins og er ætlað að leiða hönnun og uppbyggingu umhverfis byggðu á Microsoft Power Platform.
**
Helstu verkefni:**
– Hönnun og þróun lausna byggðum á Power Platform, einkum með Power Apps og Power Automate
– Uppbygging útgáfuumhverfa og útfærsla útgáfustýringa sjálfvirknilausna
– Samstarf við tæknilega vörustjóra um rekstur og þjónustu lausna
– Gerð tæknilýsinga, rekstrarhandbóka og notendaleiðbeininga
– Þjálfun og fræðslu til starfsfólks eftir þörfum
– Samskipti við birgja
**
Hæfnikröfur:**
– Góð samskiptafærni
– Reynsla hönnun og uppbyggingu sjálfvirknilausna
– Reynsla af þróun með Microsoft Power Platform æskileg
– Haldgóð reynsla af hugbúnaðargerð í teymisvinnu er kostur
– Frumkvæði, sjálfstæði, drifkraftur og skipulagshæfni
– Gott vald á íslensku og ensku í rituðu máli
– Þekking á Agile og Scrum er kostur
– Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. í tölvunar-, verkfræði eða sambærilegt er æskileg.
Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Stefánsson, tæknilegur leiðtogi bakendaþróunar, (kristinn.stefansson@arionbanki.is) og Birna Dís Birgisdóttir, mannauðsráðgjafi (birna.birgisdottir@arionbanki.is).
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2024.
Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Ráðningarferli geta tekið misjafnlega langan tíma. Við leggjum okkur fram um að svara öllum umsóknum um leið og ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Hlutverk Arion banka er að vinna að markmiðum viðskiptavina, eigenda, starfsfólks og samfélagsins alls. Við bjóðum snjallar og traustar fjármálalausnir sem skapa viðskiptavinum, hluthöfum og samfélaginu öllu verðmæti til framtíðar. Starfsfólk bankans er fjölbreyttur hópur fólks sem á það sameiginlegt að hafa metnað fyrir störfum sínum. Við leggjum okkur fram við að byggja upp vinnustað þar sem kunnátta, þekking og færni fær að njóta sín. Við virðum mannréttindi og jafnrétti í allri okkar starfsemi og leggjum kapp á að starfa í sátt við samfélagið og umhverfið. Þinn árangur er það sem við stefnum að.
Sækja um starf
Sótt er um á heimasíðu Arion banka: www.arionbanki.is/starf