Sérfræðingur í notendaþjónustu í upplýsingatæknideild
Kvika leitar að öflugum, jákvæðum og úrræðagóðum einstaklingi í hóp sérfræðinga í upplýsingatækniteymi bankans.
Helstu verkefni:
- Úrvinnsla verkbeiðna sem berast í gegnum tölvupóst, síma eða verkbeiðnakerfi bankans
- Tækni- og notendaaðstoð við starfsmenn bankans.
- Uppsetning og viðhald á tölvubúnaði
- Ýmis verkefni sem tengjast aðgangi notenda að kerfum og gögnum bankans.
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
- Mjög góð almenn tölvukunnátta og þekking á Microsoft stýrikerfi og hugbúnaði. Kostur ef
viðkomandi hefur þekkingu á Active Directory, SCCM og DFS. - Greiningarhæfni sem nýtist við bilanagreiningu
- Fagleg, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli
- Skipulagshæfni og jákvætt hugarfar
Umsóknarfrestur er til og með 19. september n.k.
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Vinsamlegast sækið um á alfred.is: https://alfred.is/starf/kvika-banki-hf-serfr-i-notendajonustu-i-upplysingatknid-1