Sérfræðingur í notendaþjónustu
Kvika banki leitar að sérfræðingi með ríka þjónustulund í notendaþjónustu á upplýsingatæknisviði bankans. Teymið vinnur að fjölbreyttum verkefnum þvert á samstæðu og býr yfir mikilli reynslu. Um er að ræða frábært tækifæri fyrir einstaklinga sem vilja afla sér meiri reynslu í notendaþjónustu og kerfisrekstri undir leiðsögn reyndra sérfræðinga.
Kvika leitast við að auka fjölbreytileika meðal starfsfólks og fjölga konum í upplýsingatækni og hvetur öll áhugasöm, óháð kyni, til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn þjónusta við notendur með tölvur, farsíma og annan almennan tölvubúnað
- Uppsetning og viðhald vél- og hugbúnaðar notenda
- Dagleg umsjón notendakerfa
Eiginleikar sem við leitum eftir:
- Góð þekking á Windows umhverfi og notendahugbúnaði
- Reynsla af þjónustustörfum
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
- Lausnamiðuð hugsun
- Rík þjónustulund og þolgæði
- Færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Mikill áhugi á að læra nýja hluti
Kvika er öflugur banki með mikla áherslu á nýsköpun og stafrænt vöruframboð. Starfsumhverfið einkennist af samvinnu og sveigjanleika, með áherslu á frumkvæði starfsfólks, jafnrétti og gefur tækifæri til að starfa með fjölbreyttum hópi sérfræðinga með víðtæka reynslu.
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Guðmundsson, hlynur.gudmundsson@kvika.is Sótt er um starfið á umsóknarvef Kviku. Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2023.