Sérfræðingur í kerfisstjórnun
Veðurstofa Íslands leitar eftir drífandi og framsýnum einstaklingi í stöðu sérfræðings í upplýsingatækni.
Leitað er eftir einstakling sem hefur áhuga á að vera hluti af öflugu teymi sem hefur það hlutverk að bæta öryggi almennings, eigna og innviða gagnvart öflum náttúrunnar og styðja við sjálfbæra nýtingu hennar. Þessu hlutverki sinnir starfsfólk Veðurstofunnar með vöktun lofts, láðs og lagar, byggðri á öflun, varðveislu og greiningu gagna, rannsóknum, þróun og miðlun upplýsinga. Jafnframt er það hlutverk Veðurstofunnar að styðja sjálfbæra nýtingu náttúrunnar og samfélagslega hagkvæmni.
Leitað er eftir aðila sem hefur góðan tæknilegan bakgrunn, getur sinnt almennri tækniþjónustu og unnið eftir verklagi í ISO vottuðu umhverfi. Viðkomandi mun starfa á Upplýsingatæknisviði Veðurstofu Íslands.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstur miðlægra og sérhæfðra kerfa Veðurstofunnar .s.s. innleiðing, viðhald, eftirlit og ráðgjöf ásamt tilfallandi verkefnum. Viðkomandi sérhæfir sig í ákveðnum kerfum, en hefur rekstrarlega þekkingu á sem flestum kerfum upplýsingatækni.
Þátttaka í eða framkvæmd úrbótaverkefna, ásamt vali og innleiðingu tæknilausna hvers tíma.
Regluleg áætlanagerð um rekstur kerfa ásamt samskiptum við innri sem ytri aðila.
Hæfniskröfur
- Nám í tölvunarfræði, kerfisstjórnun og/eða farsæl reynsla sem nýtist í starfi
- þekking á m.a. VMWare raunvélaumhverfi, gagnageymslulausnum, vef- og netþjónum,
afritunarkerfum og Microsoft 365 umhverfinu - Reynsla af vinnu og rekstri þjóna í Linux umhverfi mikill kostur
- Þekking á Puppet, Ansible, Container, netkerfum eða eftirlitskerfum kostur.
- Þekking á rekstri gagnagrunnskerfa s.s. PostgreSQL, DB2 og fl. grunna, SQL sem og
NonSQL kostur - Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
- Frumkvæði og metnaður í starfi, lausnarmiðuð hugsun og áhugi til að tileinka sér nýjungar
- Greiningarhæfni í flóknum kerfisrekstri
- Hæfni til að miðla upplýsingum
Gildi Veðurstofu Íslands eru þekking, áreiðanleiki, samvinna og framsækni. Ráðningar á stofnuninni taka mið af þessum gildum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um er að ræða fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
Umsóknafrestur er til og með 7. júní nk.
Sækja um starf
Umsóknir óskast fylltar út á www.starfatorg.is. Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.