Sérfræðingur í gagnavísindum
Starfssvið
- Hönnun, þróun og rekstur á tölfræði- og vélnámslíkönum sem skila virði til hagaðila.
- Úrvinnsla og greining á stórum gagnasöfnum.
- Hönnun, þróun og innleiðing á gagnadrifnum lausnum.
- Vinna með hagaðilum til að skilgreina og útfæra þarfir til að efla gagnadrifna ákvarðanatöku.
- Framsetning tölfræðilegra upplýsinga á skýran og hnitmiðaðan hátt.
Hæfnikröfur
- Háskólapróf í gagnavísindum, stærðfræði- og tölfræðigreinum, tölvunarfræði, verkfræði eða skyldum greinum.
- Mikil þekking og reynsla af forritun í R og/eða Python, auk færni í notkun helstu gagnavísindapakka/NLP-pakka (t.d. pandas, tidyverse, scikit-learn, spaCy).
- Reynsla af úrvinnslu gagna og hönnun á greiningarlíkönum.
- Víðtæk þekking á, og færni í notkun tölfræði- og vélnámsaðferða.
- Góður skilningur á stórum mállíkönum (e. LLMs) og vélnámsþróunarumhverfum (e. ML stack).
- Reynsla af hugbúnaðarþróun eða skyldum tæknilegum sviðum, ásamt færni í SQL og Git.
- Kunnátta í notkun skýjaþjónusta (AWS, Google Cloud, Azure) og reynsla af tækni á borð við Docker eða Kubernetes.
- Reynsla af því að vinna með stór gagnasöfn og gagnavinnslukerfi.
- Hæfni til að miðla flóknum niðurstöðum á einfaldan og skýran hátt.
- Sterk greiningarhæfni og lausnarmiðað hugarfar.
- Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymi.
- Brennandi áhugi á nýjustu þróun í gervigreind og málvísindum.
Launakjör
- Samkeppnishæf laun
- Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar.
- Sveigjanlegur vinnutími.
- Skapandi, jafnvel nýskapandi, vinnuumhverfi.
Frekari Upplýsingar
Áhugasamir umsækjendur eru hvattir til að senda inn ferilskrá ásamt ítarlegri kynningu á hæfni sinni og reynslu sem þeir telja nýtast í starfi. Dæmi um fyrri verkefni eða framlag til tengdra verkefna eru einnig velkomin.
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Ekkert meira