Sérfræðingur í gagnaþróun

Seðlabanki Íslands 8. Jan 2025 Fullt starf

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan og þjónustulundaðan einstakling í starf sérfræðings í gagnaþróun í deild þróunar og gagnahögunar á sviði upplýsingatækni.

Sviðið sér um þróun, rekstur og viðhald á stafrænum upplýsinga- og viðskiptalausnum bankans. Deildin annast fjölbreytt verkefni en sérfræðingar í gagnaþróun bera ábyrgð á tæknilegri útfærslu og rekstri á gagnaskilum bankans. Einnig sjá þau um þróun á tölfræðivöruhúsi gagna, stuðning við gagnaskil skilaaðila, ásamt skilum á gögnum til evrópskra eftirlitsstofnana.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Uppbygging, samþætting og viðhald á gagnaumhverfi bankans
  • Þróun og viðhald á gagnagrunnum, ETL ferlum, gagnaskilum og gagnaprófunum
  • Þróun gagnainnviða og vöruhúss fyrir tölfræðivinnslu
  • Verkefni tengd þarfagreiningu og hönnun gagnamódela

Hæfniskröfur:

  • Meistarapróf á háskólastigi í tölvunar-, verkfræði eða sambærilegu sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla á SQL og gagnagrunnsforritun
  • Þekking og reynsla á ETL ferlum
  • Þekking á SDMX, XML og/eða XBRL er kostur
  • Þekking á C#, Python og/eða R er kostur
  • Þekking á skýjalausnum (t.d. Azure data solutions) er kostur
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og góð hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum
  • Frumkvæði, skapandi hugsun, jákvæðni, skipulag og metnaður í starfi
  • Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar um starfið veita Elín Rut Guðnadóttir, forstöðumaður þróunar og gagnahögunar á upplýsingatæknisviði (elin.rut.gudnadottir@sedlabanki.is) og Árni Ragnar Stefánsson, mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar nk.

Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild í metnaðarfullu og hvetjandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á sveigjanleika, fagmennsku og þekkingu. Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.

Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.