Sérfræðingur í Business Central og LS Retail

Bláa Lónið 27. Sep 2024 Fullt starf

Bláa Lónið leitar að öflugum sérfræðingi til að ganga til liðs við metnaðarfullt teymi Upplýsingatækni & Stafrænnar Þróunar. Um er að ræða spennandi starf þar sem áhersla er lögð á Business Central og LS Retail til framtíðar.

Helstu verkefni

  • Ráðgjöf og þjónusta við lykilnotendur.
  • Vinna á móti verktökum og þróunarteymi Bláa Lónsins.
  • Fræðsla og þjálfun fyrir helstu notendur og gerð kennsluefnis.
  • Hönnun og skjölun á sérlausnum.
  • Framkvæmd viðeigandi greininga.
  • Þátttaka í uppfærslum og verkefnum í LS Retail og Business Central.
  • Gæðastýring þróunar- og innleiðingarverkefna í samstarfi við prófunarstjóra.
  • Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun eða starfsreynsla sem nýtist í starfi.
  • Marktæk reynsla og þekking á hugbúnaðarþróun.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Þekking á Business Central, LS Retail er æskileg.
  • Góð enskukunnátta.
  • Viðkomandi mun hafa starfsstöð í skrifstofuhúsnæði Bláa Lónsins í Urriðaholti í Garðabæ.

    Bláa Lónið er lifandi, skemmtilegur og fjölbreyttur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun og nýsköpun. Með framúrskarandi samvinnu allra starfsmanna er markmiðið að skapa einstaka upplifun fyrir gesti.


    Sækja um starf
    Upplýsingar fyrir umsækjendur

    Umsóknarfrestur er til og með 7.október.

    Nánari upplýsingar um starfið veita mannauðssérfræðingar Bláa Lónsins í síma 420-8800.