SÉRFRÆÐINGAR Á SVIÐI KERFISÞJÓNUSTU
Endor er ungt og kraftmikið þjónustu- og ráðgjafafyrirtæki í upplýsingatækni. Hjá félaginu starfar reynslumikið teymi sem hefur vaxið hratt á innlendum og erlendum mörkuðum.
Endor leitar að metnaðarfullum einstaklingum með ríka þjónustulund sem búa yfir faglegum vinnubrögðum, liprum samskiptum og vinna vel undir álagi.
Tækifærin til að skapa forskot eru núna og við erum að ráða.
STARFSSVIÐ:
Ráðgjöf, hönnun, úttektir, innleiðingar, notendaþjónusta, kerfisþjónusta og rekstur á upplýsingatækniumhverfi viðskiptavina, tengdum lausnum og samhæfing þeirra.
HÆFNISKRÖFUR:
- Tækniþekking sem nýtist í starfi
- Víðtæk reynsla af rekstri upplýsingakerfa
- Mjög góð þekking á Windows stýrikerfum, bæði server og client
- Þekking á Linux stýrikerfum og netrekstri æskileg
- Krafa um stundvísi, heiðarleika og lipur samskipti
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Umsóknir ásamt ferilskrá eða ósk um frekari upplýsingar sendist á Júlíus Magnús Pálsson, julli@endor.is.