Sérfræðingur á sviði innivistar og sjálfbærni
Mannvit óskar eftir að ráða hönnuð á sviði húsbygginga með sjálfbærni að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Verk- eða tæknimenntun á sviði húsbygginga.
- Þekking og áhugi á innivist bygginga almennt s.s. loftgæðum og byggingareðlisfræði.
- Þekking á aðferðum til að meta orkunýtingu, varma- og rakaflæði bygginga æskileg.
- Þekking á lífsferilsgreiningum og líftíma kostnaðargreiningum æskileg.
- Þekking og áhugi á umhverfisvottunum svo sem BREEAM og Svansvottunum æskilegur.
- Verkreynsla er ekki skilyrði, ef viðkomandi getur sýnt fram á að hafa kynnst sem flestum af ofangreindum þáttum í námi.
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni í mannlegum samskiptum.
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Sótt er um í gegnum heimasíðu Mannvits: https://www.mannvit.is/starfsumsokn/
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2021. Nánari upplýsingar veitir Einar Ragnarsson, sviðsstjóri mannvirkja og umhverfis í síma 422 3015.