Sérfræðingur á sviði gagnastrauma og gæðaeftirlits
Veðurstofa Íslands auglýsir eftir sérfræðingi á sviði gagnastrauma og gæðaeftirlits, sem kemur til starfa á Athugana- og tæknisviði. Sviðið sinnir margþættu hlutverki fyrir langtíma náttúrufars- og auðlindarannsóknir og vöktun náttúruvár. Í boði er spennandi og krefjandi starf í hópi 20 starfsmanna við rekstur á mælikerfum sem telja um 600 stöðvar vítt og breytt um landið.
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlit með gagnastraumum og gæðaeftirlit innifelur m.a. högun gagna, val á gagnaflutningsleiðum og sjálfvirknivæðingu gæðaeftirlits frumgagna, en jafnframt rekstur mælikerfa og umsjón með tækja- og stöðvagagnagrunni stofnunarinnar. Starfið gerir kröfu um töluverða tölvuþekkingu og greiningarhæfni, en einnig reynslu af vinnu með stór gagnasöfn og þekkingu á rekstri mælikerfa til öflunar þeirra. Starfið innifelur einnig töluverða útivist, enda eru mælistöðvar staðsettar allt frá ystu annesjum og upp á hæstu jökla.
Hæfniskröfur
– Háskólanám á sviði, verkfæði, tæknifræði, eða tölvunarfræði. Framhaldsmenntun (MS) á framangreindum sviðum er kostur
– Reynsla á sviði gagnaumsýslu, gagnaflutnings- og greiningu gagna
– Góð tölvuþekking, þekking á Linux og Windows og helstu gagnagrunnskerfum
– Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu
– Góð færni í íslensku og ensku
– Þekking á sviði hugbúnaðarþróunar og verkefnastýringar er kostur
– Reynsla á sviði mælareksturs, beitingu og viðhaldi mælitækja er kostur
– Reynsla í gerð verkefnaáætlana og skjölunar- og skýrslugerðar er kostur
– Reynsla af útivist og ferðum í óbyggðum ásamt ökuréttindum C1E er kostur
Sækja um starf
Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni munu taka mið af þessum gildum.
Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytið. Hjá stofnuninni starfa um 140 manns með fjölbreytta menntun og starfsreynslu sem spannar mörg fræðasvið. Auk þess starfa um 80 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Hlutverk stofnunarinnar er öflun, varðveisla og úrvinnsla gagna, sem og miðlun upplýsinga á helstu eðlisþáttum jarðarinnar, þ.e. lofti, vatni, jörð, snjó, jöklum og hafi. Starfsemin fer fram á fjórum sviðum: Athugana- og tæknisviði, Úrvinnslu- og rannsóknasviði, Eftirlits- og spásviði og og Upplýsingatæknisviði auk Skrifstofu forstjóra, fjármála- og stoðþjónusta. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.vedur.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.08.2022
Nánari upplýsingar veita
Óðinn Þórarinsson, Framkvæmdastjóri Athugana- og tæknisviðs - odinn@vedur.is - 5226000 og Borgar Ævar Axelsson, Mannauðsstjóri - borgar@vedur.is - 5226000