Sérfræðingur á iðnaðarsviði
Raftákn óskar eftir að ráða til sín öflugan aðila í starf sérfræðings á iðnaðarsviði.
Raftákn leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi til að vinna að lausn verkefna á iðnaðarsviði á skrifstofu fyrirtækisins í Reykjavík. Verkefnin eru í iðnaði, hjá opinberum aðilum, veitukerfum og virkjunum. Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um.
Starfssvið
- Hönnun og þróun stjórnkerfa og stýrirása
- Forritun stýrivéla, jaðarbúnaðs, þjarka, notendaviðmóts og upplýsingakerfa
- Uppsetning, gangsetning og viðhald sjálfvirkra kerfa
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfnikröfur:
- Háskólamenntun í verk- eða tæknifræði. Mikill kostur ef menntun er á sviði rafmagns- eða hátækniverkfræði
- Reynsla af vinnu við hönnun og forritun stjórnkerfa
- Reynsla og þekking á forritun búnaðar í iðnaði, veitukerfum eða virkjunum
- Þekking á forritun í C++, Python eða sambærilegu er kostur
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Rík þjónustulund og samskiptahæfileikar
- Geta til vinna sjálfstætt og eiga í beinum samskiptum við viðskiptavini
Umsóknarfrestur er til og með 10. október næstkomandi.
Raftákn er rafmagnsverkfræðistofa með starfsstöðvar á Akureyri og í Reykjavík. Hjá Raftákni starfa 27 manns að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á Íslandi og erlendis. Viðskiptavinir Raftákns eru m.a. opinberir aðilar, orku- og veitufyrirtæki, sjávarútvegsfyrirtæki, stóriðjufyrirtæki og hátæknifyrirtæki.
Sækja um starf
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferlisskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.