Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum

Landsbankinn 16. Jan 2012 Fullt starf

Upplýsingatæknideild Landsbankans leitar að öflugum sérfræðingi til að taka að sér leiðandi hlutverk á sviði hugbúnaðarprófana.
Nýr liðsmaður mun taka þátt í stefnumótun og leiða faglegt starf prófana í hugbúnaðarþróun.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði kerfisfræði, tölvunarfræði, tækni- eða verkfræði
  • 3 ára reynsla af prófunum í hugbúnaðargerð og yfirgripsmikil þekking í faginu
  • Reynsla í sjálfvirknivæðingu prófana
  • Gott auga fyrir nytsemi hugbúnaðar og geta sett sig með auðveldum hætti í spor notenda
  • Reynsla af vinnu í Visual Studio og þekkja til C#
  • Þekking á gagnagrunnskerfum er kostur
  • Frumkvæði, fagmennska og færni í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

Hjá Upplýsingatæknideild Landsbankans byggjum við á öflugri liðsheild, höfum innleitt Agile og notum m.a. Scrum, Kanban og prófanadrifna hugbúnaðargerð (TDD).


Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar veita Birna Íris Jónsdóttir, deildarstjóri UT hugbúnaðar, í síma 410 7081 og Berglind Ingvarsdóttir hjá Mannauði (berglind.ingvarsdottir@landsbankinn.is) í síma 410 7914. Umsókn merkt „Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum“ fyllist út á www.landsbankinn.is. Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar nk.