Reyndur hugbúnaðasérfræðingur
Hafrannsóknastofnun leitar að reyndum og metnaðarfullum hugbúnaðarsérfræðingi til að styrkja uppbyggingu, viðhald og framþróun upplýsingakerfa stofnunarinnar.
Þú verður hluti af öflugu hugbúnaðarteymi sem vinnur saman að úrlausn fjölbreyttra verkefna, þvert á svið stofnunarinnar.
Þú munt leika lykilhlutverk í þróun og uppsetningu á bakenda. Við erum að hefja stafræna vegferð þar sem áherslan er á framúrskarandi þjónustu við notendur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun, þróun og innleiðing nýrra hugbúnaðarlausna.
- Greina kröfur og óskir notenda með tilliti til gagna.
- Þróun, smíði og viðhald vefþjónusta og kerfa í skýjaumhverfi.
- Stuðningur við úrvinnslu og framsetningu gagna.
Hæfniskröfur
- Háskólapróf í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða önnur sambærileg menntun.
- Lágmark 5 ára reynsla sem bakendaforritari.
- Reynsla af innleiðingu breytinga á sviði upplýsingatækni.
- Reynsla af Java, C# eða öðru sambærilegu forritunarmáli.
- Reynsla af AWS er æskileg
- Reynsla af viðmótsforritun er kostur.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður.
- Mjög góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja:
- Ítarleg ferilskrá
- Afrit af prófskírteinum
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið
- Tilnefna skal tvo meðmælendur
Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.Hafrannsóknastofnun áskilur sér jafnframt rétt til að hafna öllum umsóknum.
Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar.
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegur vinnutími
- Fjarvinna (óstaðbundið starf)
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Mötuneyti
- Öflugt og skemmtilegt starfsmannafélag
Nánari upplýsingar veitir
Rúnar Jón Hermannsson, runar.jon.hermannsson@hafogvatn.is Sími: 844-8884
Kristín Guðrún Lúðvíksdóttir, kristin.g.ludviksdottir@hafogvatn.is
Sækja um starf