Reyndur Full stack Forritari
Spennandi og fjölbreytt starf
Við hjá Sendiráðinu leggjum áherslu á skemmtilegt og vandað vinnuumhverfi þar sem sköpunargáfa fær að blómstra og endurspeglar þau gæði sem við höfum uppá að bjóða.
Erum við að leita af þér?
-
Ertu jákvæður, metnaðarfullur, lausnamiðaður einstaklingur og átt auðvelt með samskipti?
-
Telur þú að gæði kóða skuli vera höfð í fyrirrúmi?
-
Hefur þú sjálfstæða og skapandi hugsun?
-
Brennur þú fyrir hugbúnaðarþróun?
-
Nýtur þú þess að vinna að flóknum verkefnum í þverfaglegu teymi einstaklinga?
Hæfniskröfur
-
5 ára reynsla af hugbúnaðarþróun
-
Reynsla af NestJS, React, Typescript eða sambærileg tækni
-
Menntun á sviði tölvunarfræði/verkfræði er kostur en ekki krafa
-
Reynsla af teymisvinnu
-
Góð færni í að miðla upplýsingum og gagnrýni á uppbyggilegan hátt
Kostur ef viðkomandi hefur reynslu á eftirfarandi:
-
GraphQL
-
AWS (App Runner, EKS, EC2, Lambda, Cloudfront, RDS)
-
Elastic Search
-
Docker/Kubernetes
-
CI/CD tólum
-
Infrastructure as code (Terraform)
-
Headless CMS lausnum
-
E2E test tólum t.d. Cypress
Sendiráðið vinnur að verkefnum fyrir fjölda stofnana og fyrirtæki þar sem við veitum ráðgjöf, hönnum og þróum stafrænar lausnir.
Við viljum bæta í hópinn hjá okkur reyndum, metnaðarfullum og skemmtilegum forritara sem hefur áhuga á að vinna í vaxandi fyrirtæki í nútímalegum tæknistakk.
Umsækjendur þurfa að vera vel kunnug nýjustu tækni og með að minnsta kosti 5 ára reynslu.
Það sem við bjóðum upp á:
-
Fjölbreytt verkefni í nútímalegum tæknistakk
-
Fjölskylduvænt fyrirtæki með sveigjanlegri viðveru og möguleika á fjarvinnu.
-
Tækifæri til að vinna í teymi með skemmtilegu og hæfileikaríku fólki í frábæru starfsumhverfi
-
Vaxandi fyrirtæki þar sem allir hafa rödd
-
Val um niðurgreiddan hádegismat í úrvals mötuneyti eða Maul.
-
Gott kaffi og fullur ísskápur af allskonar veitingum.
-
Tölvubúnaður að eigin vali
-
Styttingu vinnuvikunnar
-
Samkeppnishæf laun
-
Verkefnamiðað verkskipulag
Sækja um starf
Sendu okkur umsókn og ferilskrá á hallo@sendiradid.is ef þú telur þig vera réttu manneskjuna í starfið. Hlökkum til að heyra frá þér.