Ráðgjafi í stafrænni vöruþróun
Kolibri er að leita að ráðgjafa í stafrænni vöruþróun. Ráðgjafar Kolibri eru framvarðasveit okkar, taka höndum saman með viðskiptavinum og leiða samstarf á sviði stafrænnar þróunar. 🚀
Við leitum eftir:
Reynslu af stafrænni vöru/verkefnastýringu og/eða forystuhlutverkum í stafrænum vöruþróunarteymum.
Þekkingu og brennandi áhuga á lykilþáttum árangurs í stafrænni vöruþróun – nýsköpun (product discovery), hraðri og tíðri afhendingu og öflugri teymisvinnu.
Frumkvæði, drifkrafti og framúrskarandi samskiptafærni.
Hvað ert þú að fara að gera?
Ráðgjafar Kolibri leiða vinnu stafrænna þróunarteyma og hjálpa viðskiptavinum að ná hámarksárangri í sinni vegferð.
Við vinnum náið saman, bæði innan teymis og með viðskiptavininum, og sökkvum okkur inn í áskoranir viðskiptavina okkar. Þitt hlutverk er að stilla upp umgjörð þar sem slíkt samstarf verður að veruleika og skilar áþreifanlegum árangri.
Það sem við bjóðum:
Styðjandi kúltúr með opnum og heiðarlegum samskiptum sem á sér engan líka á Íslandi
Samstarf við framúrskarandi fagfólk á öllum sviðum
Mikið frjálsræði og traust
Frábæra vinnuaðstöðu og val um búnað
Staðsett í 💛 Reykjavíkur
Góð laun
Geggjuð fríðindi
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Vinsamlega sendið umsóknir og spurningar á hiring@kolibri.is. Nánari upplýsingar veitir sveinbjorg@kolibri.is.