PPC- og SEO-sérfræðingur í samfélagsdeild
PIPAR\TBWA auglýsir eftir sérfræðingi í samfélagsdeild með sérþekkingu á SEO (search engine optimization eða leitarvélabestun) og PPC (pay per click). Umsækjendur þurfa bæði að geta unnið sjálfstætt og tekið þátt í hópastarfi og krefjandi verkefnum í líflegu umhverfi. Viðkomandi kemur einnig inn í önnur verkefni samfélagsdeildar.
Hæfniskröfur:
\ Sérfræðiþekking á PPC og SEO og starfsreynsla á þessu sviði
\ Góð þekking á samfélagsvefjum og markaðssetningu á netinu
\ Jákvæðni, gott skap og hæfni í mannlegum samskiptum
Hjá PIPAR\TBWA starfa 28 manns. Stofan er sú fyrsta á landinu sem hefur sérdeild samfélagsvefja, en þar starfa þegar fimm sérfræðingar. PIPAR\TBWA er hluti af TBWA sem er ein af framsæknustu samstarfskeðjum auglýsingastofa í heiminum. Þar starfa um 12.000 manns á 258 stofum í 77 löndum.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um í gegnum Facebook síðu PIPARTBWA https://www.facebook.com/pipartbwa?sk=app_331158676921753