Notendaþjónusta og kerfisrekstur

TRS óskar eftir að ráða í fjölbreytt starf við notendaþjónustu og kerfisrekstur á starfsstöð fyrirtækisins á Selfossi.
Starfssvið
– Almenn notendaþjónusta
– Vettvangsþjónusta
– Uppsetning og viðhald tölvubúnaðar
– Viðhald tölvukerfa ásamt kerfisumsjón
Menntunar- og hæfniskröfur
– Öguð og sjálfstæð vinnubrögð
– Reynsla af notendaþjónustu
– Rík þjónustulund
– Þekking á Microsoft umhverfi
– Tæknilegar vottanir og/eða önnur menntun sem nýtist í starf
TRS er þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni , fjarskiptum og rafmagni. Fjöldi starfsmanna TRS hefur vaxið ár frá ári og eru nú 42 starfsmenn að störfum hjá fyrirtækinu á tveimur starfsstöðvum á Selfossi og í Kópavogi. Síðastliðinn tíu ár hefur TRS hlotið útnefningu sem Framúrskarandi fyrirtæki hjá Credit Info, en einungis fyrirtæki sem skara fram úr í sínum rekstri hljóta þennan heiður, eða um 2% íslenskra fyrirtækja. Árið 2014 hlaut TRS vottun að upplýsingaöryggisstjórnkerfi fyrirtækisins samræmist alþjóðlega ISO/IEC 27001:2013 upplýsingaöryggis- staðalinum og hefur sú vottun verið staðfest árlega eftir það. Hjá TRS er rekin metnaðarfull endurmenntunarstefna starfsfólks með það að leiðarljósi að starfsfólki líði vel í starfi og viðskiptavinir okkar fái framúrskarandi þjónustu. Hjá TRS er öflugt starfsmannafélag og góður liðsandi.
Sækja um starf
Umsóknarfrestur er til og með 11. júlí. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Nánari upplýsingar veita Henrietta Þóra Magnúsdóttir (henrietta@intellecta.is) og Torfi (torfi@intellecta.is) ráðgjafar hjá Intellecta í síma 511 1225