Netstjóri
Valitor óskar eftir að ráða til sín netstjóra á rekstrar- og þróunarsviði.
Valitor er alþjóðlegt greiðslulausnafyrirtæki og eitt fárra sem bjóða alhliða þjónustu sem spannar allt frá samþykki greiðslu, kortaútgáfu, greiðslugátt á vefnum og posaþjónustu við búðarborðið.
Um er að ræða krefjandi og skemmtilegt starf fyrir öflugan einstakling sem þarf að vera duglegur að tileinka sér nýjungar.
Starfssvið:
-
Rekstur, viðhald og uppbygging á netumhverfi Valitor
-
Netrekstur á sýndarumhverfum, álagsdreifum og netöryggislausnum
Menntunar- og hæfniskröfur:
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
-
A.m.k. þriggja ára reynsla af rekstri netbúnaðar- og netöryggiskerfa
-
Vottun á sviði net- og netöryggismála er kostur
-
Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
-
Skipulögð og öguð vinnubrögð
-
Geta og vilji til að vinna vel í hóp en einnig til að vinna sjálfstætt
-
Drifkraftur og vilji til að takast á við stór og skemmtileg verkefni
Sækja um starf
Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 23. október 2020.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Svavarsson, hópstjóri Network & Infrastructure hjá Valitor, í síma 525 2000.