Netöryggissérfræðingur
Netöryggissérfræðingar!
Spennandi, flóknum og krefjandi verkefnum SecureIT er að fjölga gríðarlega innanlands og á alþjóðavísu og þurfum við nauðsynlega að fá öfluga netöryggissérfræðinga á ólíkum sviðum til liðs við okkur!
SecureIT leggur mikla áherslu á vellíðan starfsmanna og veita þeim tækifæri til að vinna í krefjandi, spennandi og skemmtilegum verkefnum með frábæru starfsfólki viðskiptavina okkar. Starfsmenn geta að öllu jöfnu unnið í fjarvinnu og svo hjá viðskiptavinum eftir þörfum.
Ert þú manneskjan sem við erum að leita að fyrir tæknilegar öryggisprófanir? Eða ertu manneskjan sem við þurfum í öryggisráðgjöf og úttektir?
Við leitum eftir einstaklingum með
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og metnað
- Menntun sem nýtist í starfi
- Eldmóð og áhuga fyrir því að skara fram úr og veita afburða þjónustu
- Mikla þjónustulund og samskiptahæfni
Netöryggissérfræðingur í öryggisprófunum
- Framkvæmir innbrotsprófanir (e. Penetration test) á innri, ytri kerfum og t.d. skýjaumhverfum viðskiptavina
- Framkvæmir úttektir á vefkerfum (e. Web application penetration test)
- Framkvæmir vefveiði árásir (e. Phishing)
- Kemur að þróun tæknilegra innviða sem eru notuð við öryggisprófanir (SecDevOps)
Netöryggissérfræðingur í ráðgjöf og úttektum
- Framkvæmir úttekt á tæknilegu umhverfi, innviðum og öryggisvörnum
- Framkvæmir úttekt á regluverki (e. ISMS) og öryggisrömmum (e. Security framework)
- Framkvæmir úttekt á hlítingu við staðla, s.s. gagnvart PCI, HITRUST, NIST, GDPR, FME og ISO27001
- Veitir ráðgjöf um hvernig best sé hægt að mæta hvers kyns öryggis- og hlítingarkröfum (t.d. vegna PCI, HITRUST, NIST, GDPR og ISO27001)
Um SecureIT
SecureIT er leiðandi á sviði netöryggis og vinnur fyrir fjölda innlendra og alþjóðlegra fyrirtækja þar sem öryggiskröfur eru miklar, svo sem fyrir banka, færsluhirða, flugrekstraraðila, smásöluaðila, aðila í líftækni- og orkugeiranum, hugbúnaðar- og tölvuleikjafyrirtæki og hið opinbera.
SecureIT sinnir ráðgjöf í netöryggismálum, úttektum og öryggisvottunum fyrirtækja og býður upp á öryggisþjónustur sem ná til allra þátta upplýsingaöryggis. Starfsmenn fyrirtækisins eru með fjölda alþjóðlegra viðurkenninga um sérfræðiþekkingu á sviði netöryggis og persónuverndar. Eins er fyrirtækið í nánu samstarfi við nokkur erlend öryggis- og vottunarfyrirtæki sem gerir SecureIT kleift að bjóða m.a. upp á ýmsar öflugar öryggisþjónustur allan sólarhringinn og hins vegar felur það í sér skemmtileg verkefni fyrir alþjóðlega viðskiptavini í gegnum samstarfsverkefnin.
Sækja um starf
Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Umsóknir skal senda á jobs@secureit.is
Nánari upplýsingar veitir Magnús Birgisson, framkvæmdastjóri SecureIT í gegnum jobs@secureit.is og 888 4268.