Máltækniforritari (NLP)
Snjallgögn óska eftir að ráða úrræðagóðan NLP (e. Natural Language Programming) forritara til að hagnýta og sérsníða gervigreindarlíkön í viðskiptalegu samhengi. Í þessu hlutverki samþættir viðkomandi öflugar tæknilausnir til að sjálfvirknivæða úrlausn flókinna áskoranna.
Starfssvið
- Leiða hönnun og innleiðingu framúrskarandi NLP kerfa.
- Hanna og innleiða í samstarfi við teymið öfluga verkferla fyrir NLP þróun.
- Þróa og viðhalda samþættingarlausnum, þar á meðal forrita sem nota samþættingarramma fyrir tungumálalíkön og ýmis forritaskil til að bæta gervigreindarlausnir.
- Smíða frumgerðir af þjónustum og þróa þannig að hægt sé að afhenda viðskiptavinum.
- Skoða með reglubundnum hætti virkni líkana og kerfa, gera nauðsynlegar breytingar og besta í takt við stórstígar framfarir á sviði gervigreindar, máltækni, og vélnáms.
Hæfnikröfur
- Háskólapróf í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, tölvuverkfræði eða öðrum verk og raunvísindagreinum.
- Hugmyndaauðgi við lausn vandamála, þekking á Python, og reynsla af lykilkerfum í heimi gagnavísinda/NLP eins og Pandas, Scikit-learn, og SpaCy. Brennandi áhugi á nýjustu þróun í gervigreind og málvísindum.
- Hagnýt reynsla af hugbúnaðarþróun, þar með talin vinna með SQL og Git, ásamt skilningi á máltækni og tækniumhverfi vélnáms.
- Þekking á skýjaþjónustum eins og AWS og Azure, og helst færni í uppsetningu gagnaíláta í umhverfi á borð við Docker eða Kubernetes.
Launakjör
- Samkeppnishæf laun sem taka mið af reynslu
- Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar.
- Sveigjanlegur vinnutími.
- Skapandi, jafnvel nýskapandi, vinnuumhverfi.
Frekari Upplýsingar
Áhugasamir umsækjendur eru hvattir til að senda inn ferilskrá ásamt ítarlegri kynningu á hæfni sinni og reynslu sem þeir telja nýtast í starfi. Dæmi um fyrri verkefni eða framlag til tengdra verkefna eru einnig velkomin.
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Meira á 50skills síðunni