Leiðtogi hönnunar
Kæri hönnuður, við hjá Júní leitum að leiðtoga hönnunar með framúrskarandi hæfileika og reynslu. Við erum með mörg krefjandi og spennandi verkefni í gangi við að þróa stafrænar vörur og þjónustu, bæði í app- og vefformi, fyrir mörg af framsæknustu fyrirtækjum og stofnunum landsins.
Notendaupplifun er efsta mál á dagskrá alla daga og hönnun eru okkar trúarbrögð (þannig). Ef þú deilir þessum áhugamálum með okkur viljum við endilega fá þig í Júníversinn.
Menntunar-og hæfniskröfur
- Að lágmarki 5 ára reynsla af stafrænni eða grafrískri hönnun og UX og UI
- Háskólamenntun í grafískri/stafrænni hönnun eða sambærilegt; er kostur en ekki skilyrði
- Víðtæk reynsla af hönnun og hönnunarkerfum
- Reynsla í kynningum á hönnun og framsetningu hönnunarverkefna fyrir viðskiptavini
- Viðkomandi búi yfir framúrskarandi færni í hönnunartólum, helst afburða færni í Figma, og bónus ef reynsla í kvikun
- Framsýni í hönnun og stafrænni mörkun
- Reynsla af stjórnun teyma og góð samskiptahæfni
- Skipulagshæfni og nútímaleg vinnubrögð
- Metnaður og áræðni til að taka þátt í að byggja upp spennandi vinnustað
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og vinna hönnunarverkefni fyrir viðskiptavini Júní
- Leiða hönnunarteymi Júní
- Sæti í leiðtogateymi Júní
- Skipuleggja hönnunarfundi fyrir teymið
- Stuðla að vexti og endurmenntun teymis
- Halda einn á einn fundi með teymismeðlimum
- Samskipti við viðskiptavini
- Vera sendiherra og í forsvari fyrir hönnun Júní
Júní
Júní er stafræn stofa sem sérhæfir sig í stafrænni umbreytingu fyrirtækja og stofnana. Hjá Júní starfa 29 manns sem búa yfir víðtækri reynslu í faginu. Við hjá Júní viljum hafa áhrif á framtíðina í stafrænum lausnum sem einfalda og gera líf fólks betra. Júní einblínir á lærdómsmiðaða og frumlega hugsun, okkur þykir vænt um teymið og við viljum vera framsækin og hugrökk í nálgun okkar. Júní býður upp á fallega skrifstofu og fjölskylduvænt starfsumhverfi þar sem við nýtum nýjustu tækni og tól til að sigrast á öllum (eða flestum) heimsins vandamálum.
Við bjóðum upp á vinnustað þar sem:
- Fólk fær að blómstra og vaxa á sínu sviði
- Rými fyrir umræður, spurningar og endurgjöf
- Uppbyggjandi og skilvirk samskipti
- Gleði og starfsánægju í teyminu okkar sem og með viðskiptavinum
- Sköpunargleðin fær að njóta sín í botn
- Tækifærin eru í áskorunum
Endilega skoðið meira um okkar á juni.is
Sækja um starf
Áhugasamir sendi umsókn og ferilskrá á job@juni.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er 1. október