Kerfisstjóri / Rekstrarvakt
Rapyd óskar eftir að ráða kerfisstjóra / tæknimann í tímabundið starf á vaktir.
Annars vegar er um er að ræða tímabundna ráðningu frá 1. maí til 30. september 2023 og hins vegar afleysingu yfir sumarið 2023.
Rekstrarvakt sér um daglegan rekstur og vöktun á kerfum og búnaði fyrirtækisins ásamt þjónustu við bæði innri og ytri viðskiptavini.
Um er að ræða skemmtilegt og krefjandi starf og tækifæri á samvinnu með reynslumiklu teymi sérfræðinga, t.d. kerfisfræðingum, gangagrunns- og netsérfræðingum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur og vöktun upplýsingakerfa
- Eftirlit með kerfum fyrirtækisins og viðbrögð við rekstraratvikum
- Umsjón með hugbúnaði í rekstri
- Umsjón með kerfisvinnslum – undirbúningur, viðhald og keyrsla
- Leiðbeiningar og aðstoð við innri og ytri notendur
- Ýmis önnur tilfallandi verkefni
- Unnið er á 8 til 12 tíma vöktum allan sólarhringinn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tæknimenntun á borð við kerfisstjórn, kerfisfræði eða tölvunarfræði
- Sambærileg reynsla eða menntun sem nýtist í starfi
- Jákvætt hugarfar og þjónustulund
- Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
- Nákvæm og öguð vinnubrögð
- Framkvæmdavilji og metnaður
- Mjög gott vald á íslensku og ensku
Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2023.
Nánari upplýsingar veitir Kristinn Wium, Operations Manager kristinnw@rapyd.net
Sækja um starf
Valitor er framsækið fyrirtæki í greiðslumiðlun sem býður upp á fjölskylduvænt og sveigjanlegt vinnufyrirkomulag, frábært mötuneyti og skemmtileg verkefni sem tengjast grunninnviðum okkar daglega lífs. Valitor er með Jafnlaunavottun og hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA.