Kerfisstjóri / Rekstrarvakt

Valitor 21. Apr 2021 Hlutastarf

Valitor óskar eftir að ráða kerfisstjóra / tæknimann á vaktir. Um sumarstarf er að ræða, frá maí til september 2021.

Rekstrarvakt Valitor sér um daglegan rekstur og vöktun á kerfum og búnaði fyrirtækisins ásamt þjónustu við bæði innri og ytri viðskiptavini. 

Um er að ræða skemmtilegt og krefjandi starf og tækifæri á samvinnu með reynslumiklu teymi sérfræðinga, t.d. kerfisfræðingum, gangagrunns- og netsérfræðingum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegur rekstur og vöktun upplýsingakerfa Valitor
  • Eftirlit með kerfum Valitor og viðbrögð við rekstraratvikum
  • Umsjón með hugbúnaði í rekstri
  • Umsjón með kerfisvinnslum – undirbúningur, viðhald og keyrsla
  • Leiðbeiningar og aðstoð við innri og ytri notendur
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni
  • Unnið er á 8 tíma vöktum allan sólarhringinn

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Tæknimenntun á borð við kerfisstjórn, kerfisfræði eða tölvunarfræði
  • Sambærileg reynsla eða menntun sem nýtist í starfi
  • Jákvætt hugarfar og þjónustulund
  • Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
  • Nákvæm og öguð vinnubrögð
  • Framkvæmdavilji og metnaður
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku

Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2021.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Karl Níelsson, Head of IT Infrastructure, Services & Procurement, gunnar.karl.nielsson@valitor.com


Sækja um starf