Kerfisstjóri grunnreksturs á upplýsingatæknisviði
Kerfisstjóri grunnreksturs á upplýsingatæknisviði
Við leitum að reynslumiklum einstaklingi til starfa á upplýsingatæknisviði Arion banka. Kerfisstjóri grunnreksturs kemur inn á ýmsa verkefnamiðaða vinnu í rekstarumhverfi með sjálfvirknivæðingu að leiðarljósi. Tekur virkan þátt í daglegum rekstri með fókus á að einfalda og betrumbæta rekstraumhverfið og fylgist náið með framþróun á rekstri innviða með virkri endurmenntun.
Helstu verkefni
- Daglegur rekstur á grunninnviðum, sýndarumhverfi, active directory og fl.
- Þátttaka í framþróun og innleiðingu á nýjum lausnum.
- Stuðla að aukinni sjálfvirknivæðingu rekstrarumhverfis.
- Rekstur á ýmsum stýringartólum fyrir sviðið
- Stuðningur og vinna með öðrum hópum innan bankans
- Greining og hönnun á rekstrarumhverfi og skýjalausnum
Hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Reynsla af Windows Server kerfisrekstri
- Reynsla af Linux kerfisrekstri
- Reynsla af rekstri Active Directory, sýndarumhverfa og skilríkjum
- Reynsla af rekstri skýjalausna æskileg
- Reynsla og áhugi á sjálfvirknivæðingu
- MCSA og/eða Azure gráður eða sambærilegar gráður eru kostur
- Þekking á tólum eins og Ansible og Terraform eða sambærilegt er kostur
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð og mikil hæfni í að greina og leysa flókin verkefni
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Þór Stefánsson, forstöðumaður DevOps (gunnar.stefansson@arionbanki.is) og Elísabet Hilmarsdóttir, mannauðsráðgjafi (elisabet.hilmarsdottir@arionbanki.is).
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2021. Sótt er um starfið á www.arionbanki.is
Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
,,Arion banki er skráður á aðallista Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Jafn réttur kvenna og karla til starfa er okkur hjartans mál. Arion banki er jafnlaunavottaður en það felur í sér formlega staðfestingu á því að fagleg vinnubrögð séu til staðar við ákvörðun launa og að starfsfólki í jafn verðmætum störfum sé ekki mismunað.“
Sækja um starf
Sótt er um starfið á www.arionbanki.is