Kerfisstjóri

Isavia ANS ehf. 12. Oct 2022 Fullt starf

Við leitum að reyndum og metnaðarfullum kerfisstjóra við rekstur fluggagnavinnslukerfis Isavia ANS og önnur kerfi tengdu því. Við bjóðum upp á spennandi og krefjandi vinnustað þar sem starfsumhverfið er líflegt og alþjóðlegt. Áhersla er lögð á að sjálfstæði og skipulagshæfileikar fá að njóta sín í öflugu teymi sem þróar og rekur hugbúnað fyrir flugumferðarstjórn.

Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði, sjálfstæði og fagmennsku í starfi, vera skipulagður og geta unnið undir álagi. Leitað er að einstaklingum með góða samskiptahæfni ásamt öruggri og þægilegri framkomu.

Unnið er að hluta til á dagvöktum og bakvöktum.

Helstu verkefni:
– Kerfisstjórnun, innleiðing og uppsetning nýrra kerfa og lausna
– Daglegur rekstur upplýsingatæknikerfa

Hæfniskröfur:

  • B.Sc. í tölvunarfræði, kerfisstjórnun, linux eða sambærilegt nám eða reynsla
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 23. október 2022

Nánari upplýsingar veitir Arnar Þórarinsson, deildarstjóri ATM kerfa, í gegnum netfangið arnar.thorarinsson@isavia.is


Sækja um starf