Kerfisstjóri

Auðkenni 28. Jan 2012 Fullt starf

VILTU TAKA ÞÁTT Í AÐ SKAPA
FRAMTÍÐ RAFRÆNNA SAMSKIPTA?
Að okkar mati eru örugg rafræn samskipti á netinu svöl hugmynd.
Hvað finnst þér? Við leitum að kerfisstjóra sem er tilbúin að vinna með okkur að mótun umhverfis rafrænna samskipta á Íslandi.
Mega hafa áhuga á tölvuleikjum og pool en ekki vera tapsárir
– við erum dálítið góð.

Hæfniskröfur
• MSCA eða MCSE
• Starfsreynsla í kerfisstórn
• Góð Þekking á Sharepoint
• Þekking á Vmware er kostur.
• Þekking á gagnagrunnum SQL og Oracle
• Frumkvæði, fagmennska og færni í mannlegum samskiptum er mikilvæg
• Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

Starfssvið
• Umsjón með rekstri staðarnets með AD, Exchange og SQL netþjónum.
• Ábyrgð á innleiðingu á Sharepoint og rekstur.
• Umsjón með rekstri skilríkjakerfis.

Auðkenni leggur áherslu á að starfsmenn tileinki sér nýjungar og vinni að framþróun í starfi sem er í stöðugri mótun. Mikilvægt er að geta unnið vel í hópi og tileinkað sér vinnubrögð sem byggja á samvinnu og frumkvæði.

Auðkenni er framsækið fyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Markmið Auðkennis er að tryggja öryggi og skapa traust í rafrænum samskiptum. Auðkenni vinnur að uppbyggingu rafrænna skilríkja til almennra nota á Íslandi.


Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar um starfið veita Haraldur Bjarnason, framkvæmdastjóri á hab@audkenni.is og Sverrir B. Sverrisson, tæknistjóri á sverrir@audkenni.is eða í síma 580 6400. Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn ásamt ferilskrá á starf@audkenni.is fyrir 6. febrúar nk. Öllum umsóknum verður svarað.