Junior & Senior Consultants

Syndis 12. Jul 2024 Fullt starf

Við leitum að starfsfólki í tæknilega og stjórnunarlega öryggisráðgjöf/-stjórnun í fjölbreytt verkefni fyrir viðskiptavini Syndis.

Vegna aukinna umsvifa viljum við ráða í eftirfarandi hlutverk:

Hvað gerum við?
Teymið samanstendur af reyndu fagfólki með fjölbreyttan bakgrunn sem aðstoðar mörg af mest spennandi fyrirtækjum landsins og erlenda viðskiptavini við upplýsingaöryggi. Dæmi um þjónustu sem við veitum er öryggisráðgjöf og úttektir, ráðgjöf við áætlanir um samfelldan rekstur, atvikastjórnun og -greining, fyrirlestrar, uppsetning á öryggisstillingum, hönnun netkerfa, æfingar á ferlum og áætlunum o.m.fl. Einnig tekur teymið að sér hlutverk upplýsingaöryggisstjóra innan fyrirtækja. Reynsla af þessum verkefnum er alls ekki skilyrði. Hins vegar leitum við að starfsfólki sem er fljótt að læra, samviskusamt, skipulagt, afbragðsgott í samskiptum og tilbúið að takast á við ný verkefni. Nánar um teymið hér.

Hver erum við?
Syndis er leiðandi fyrirtæki í upplýsingaöryggi sem sérhæfir sig í öryggislausnum og ráðgjöf á alþjóðamarkað. Fyrirtækið er í örum vexti og starfa þar nú yfir 50 öryggissérfræðingar bæði hér á landi og erlendis.Fyrirtækið er vottað skv. ISO 27001 og hlaut einnig jafnlaunastaðfestingu nýlega.

Markmið okkar er að einfalda öryggi með skynsamlegri og notendamiðaðri nálgun og jákvæðri öryggismenningu að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á samvinnu í okkar fjölbreytilegu verkefnum, að hafa gaman í vinnunni og styðja hvert annað. Öll okkar vinna er unnin af fagmennsku og einkennist af góðum samskiptum. Við gefum okkur tíma í hugmyndavinnu og hvetjum til vöruþróunar.

Við bjóðum upp á inngildandi vinnustað, fyrsta flokks félagslíf, samkeppnishæf kjör og mjög góð starfsmannafríðindi. Vinnuumhverfið er fjölskylduvænt, vinnutíminn sveigjanlegur, heimavinna eftir hentisemi og góður stuðningur við þróun í starfi og endurmenntun.

Erum við að leita að þér?
Ef þér finnst hlutverkið sem um ræðir spennandi, sendu okkur endilega umsókn með kynningarbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 20.ágúst.

Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Upplýsingar um starfið veita Ebenezer Þ. Böðvarsson (ebenezer@syndis.is) og Guðrún Valdís Jónsdóttir (gudrun@syndis.is).


Sækja um starf