Júní leitar að reyndum framendaforritara

Júní 11. Dec 2024 Fullt starf

Við leitum að reyndum framendaforritara fyrir stafræn verkefni morgundagsins

Júní er stafrænt þjónustufyrirtæki sem býður fyrirtækjum og stofnunum alhliða þjónustu í þróun stafrænna lausna. Þjónustuframboð Júní spannar allt ferlið við mótun stafrænna lausna þ.e. ráðgjöf, hönnun og forritun en markmiðið er alltaf að skapa framúrskarandi lausnir þar sem markmið viðskiptavinarins eru höfð að leiðarljósi.

Við viljum hafa áhrif á framtíðina með hönnun á lausnum sem að einfalda og gera líf fólks betra. Við erum lausnamiðað teymi og beitum skapandi og ígrundaðari hugsun til þess að takast á við verkefni morgundagsins.

Í hverju felst hlutverkið?

Starfið er fjölbreytt og felur í sér allt frá einföldum innleiðingum til flóknari fullbúinna framendalausna með tilheyrandi skipulagningu og hönnun.

Starfið er unnið í nánu samstarfi við ráðgjafa, hönnuði, bakendaforritara og viðskiptavini og gefur því gríðarlegt svigrúm til að taka þátt í að leysa flókin og krefjandi verkefni í öflugum teymum.

Hæfniskröfur:

  • Að lágmarki 5 ára reynsla af hugbúnaðarþróun
  • Háskólagráða í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegu námi
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og metnaður
  • Sjálfstæð vinnubrögð og leiðtogahæfileikar
  • Ástríða fyrir metnaðarfullri teymisvinnu

Víðtæk reynsla og þekkingu á:

  • CSS
  • HTML
  • Typescript / Javascript
  • React
  • Next.js

Við bjóðum upp á vinnustað þar sem:

  • Hvatt er til öflugrar starfsþróunar til að vaxa og dafna á sínu sérsviði
  • Rými er fyrir umræður, spurningar og endurgjöf
  • Uppbyggjandi og skilvirk samskipti
  • Gleði og starfsánægju í teyminu okkar sem og með viðskiptavinum
  • Sköpunargleðin fær að njóta sín í botn
  • Tækifærin eru í áskorunum

Þegar hæfileikaríkt fólk kemur saman verða til töfrar og útkoman er framúrskarandi árangur


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Áhugasamir sendi CV og/eða GitHub prófíl og fleira um reynslu og áhugasvið á job@juni.is fyrir 31.desember nk.

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.