Hugbúnaðarsérfræðingur í þróunarteymi

Pósturinn 18. Sep 2024 Fullt starf

Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum hvað varðar öflugar dreifingarlausnir sem standast kröfur viðskiptavina. Hjá okkur er lögð áhersla á að móta sjálfbæra leiðtogamenningu þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni.

Við leitum nú að hugbúnaðarsérfræðingi í þróunarteymið okkar. Við erum stödd í miðju breytingarferli við að nútímavæða kerfi fyrirtækisins þar sem áherslan er á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini.

Hugbúnaðarsérfræðingur mun starfa í þróun á framenda og uppsetningu á þeim, þar sem öll nýþróun er í nextJs en einnig þarf að viðhalda gömlum kerfum í React. Möguleiki á að taka þátt í þróun á bakenda kerfi sem skrifað er í .net.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði tölvunarfræði eða sambærilegt
  • Reynsla af framenda forritunarkerfum er kostur (t.d. React eða nextJs)
  • Reynsla af AWS er æskileg
  • Reynsla af .net er æskileg
  • Góð samskiptahæfni
  • Þjónustulipurð
  • Jákvætt viðhorf

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til og með 29. september 2024. Umsóknum skulu fylgja ferilskrá og kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Benedikt Þorgilsson, teymisstjóri hugbúnaðarþróunar, benediktth@postur.is.