Hugbúnaðarsérfræðingur í Delphi og PL/SQL

Andes og Prógramm 14. Oct 2024 Fullt starf

Andes og Prógramm leita að jákvæðum hugbúnaðarsérfræðingi til að vinna með okkur að viðhaldi og þróun á kerfum sem gegna lykilhlutverki fyrir viðskiptavini okkar.

Andes og Prógramm eru systurfélög sem saman mynda eitt af öflugri hugbúnaðarhúsum landsins. Við trúum því að við getum aukið skilvirkni með sérfræðiþekkingu og vali á réttum verkfærum fyrir hvert og eitt verkefni. Við erum leiðandi í stafrænni umbreytingu og sérsvið okkar eru skýjalausnir, sjálfvirkni, innviðir og flóknari hugbúnaðarlausnir. Vinnustaðurinn er frábær vettvangur fyrir þá sem vilja þróast áfram á sviði upplýsingatækni og taka þátt í krefjandi, skapandi og skemmtilegum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun og viðhald á flóknum hugbúnaðarkerfum með áherslu á stöðugleika og nýsköpun
  • Hönnun og uppbygging upplýsingakerfa fyrir stærri stofnanir og fyrirtæki
  • Sjálfvirknivæðing vinnuferla, skjölun og uppsetning á stafrænum innviðum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Marktæk reynsla af hugbúnaðarþróun
  • Reynsla af Delphi og/eða PL/SQL kostur
  • Áhugi á að tileinka sér nýja tækni og þróast í starfi
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, sjálfstæði og drifkraftur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli

Fríðindi í starfi

  • Kaupréttaráætlun
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Mötuneyti
  • Öflugt starfsmannafélag

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

– Umsóknarfrestur er til og með 21. október 2024

– Öllum umsóknum þarf að fylgja ferilskrá

– Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál

– Öllum umsóknum verður svarað