Hugbúnaðarsérfræðingur hjá hugbúnaðarlausnum
Við á heilbrigðis- og upplýsingatæknideild Landspítala (HUT) leitum eftir jákvæðum og öflugum liðsmanni sem er tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni og axla ábyrgð við umsjón og rekstur hugbúnaðarkerfa.
Hugbúnaðarlausnaeining HUT sér um rekstur fjölda klínískra hugbúnaðarkerfa og er meginhluti þeirra á sviði rafrænnar sjúkraskrár. Auk þess fer fram á vegum einingarinnar umfangsmikil þróun og samþætting kerfa. Um er að ræða gott starfsumhverfi, spennandi verkefni auk virkrar endurmenntunar og möguleikum á starfsþróun. Starfið er laust 1. janúar 2022.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Hafa umsjón með og bera ábyrgð á rekstri klíniskra upplýsingakerfa
-
Undirbúa uppsetningu á nýjum útgáfum og skipuleggja innleiðingu þeirra
-
Þjónusta, upplýsingagjöf og ráðgjöf til notenda
-
Greining á þörfum notenda og þátttaka í verkefnum
-
Verkefnastjórn og samskipti við birgja
Hæfniskröfur
-
Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg menntun
-
Þekking og reynsla af innleiðingu, rekstri og notendaþjónustu klínískra kerfa er kostur
-
Þekking og reynsla af þarfagreiningum og samþættingu kerfa
-
Þekking og reynsla af gagnasafnsvinnslu, forritun, rekstri og aðstoð við notendur
-
Reynsla af teymisvinnu og verkefnastjórn
-
Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
-
Jákvætt viðmót og lipurð í samskiptum
-
Góð skipulagshæfni og sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá, auk kynningarbréfs. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi.
Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.12.2021
Nánari upplýsingar veitir
Hannes Þór Bjarnason - hannesb@landspitali.is
Sækja um starf