Hugbúnaðarsérfræðingur – Full Stack

Andes og Prógramm 14. Oct 2024 Fullt starf

Andes og Prógramm leita að reynslumiklum hugbúnaðarsérfræðingum til að taka þátt í þróun á nokkrum af stærstu hugbúnaðarkerfum landsins.

Andes og Prógramm eru systurfélög sem saman mynda eitt af öflugri hugbúnaðarhúsum landsins. Við trúum því að við getum aukið skilvirkni með sérfræðiþekkingu og vali á réttum verkfærum fyrir hvert og eitt verkefni. Við erum leiðandi í stafrænni umbreytingu og sérsvið okkar eru skýjalausnir, sjálfvirkni, innviðir og flóknari hugbúnaðarlausnir. Vinnustaðurinn er frábær vettvangur fyrir þá sem vilja þróast áfram á sviði upplýsingatækni og taka þátt í krefjandi, skapandi og skemmtilegum verkefnum.

Ef þú hefur brennandi áhuga á hugbúnaðargerð, vilt þróast í starfi og taka þátt í spennandi verkefnum, þá er þetta starfið fyrir þig

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun upplýsingakerfa fyrir stærri stofnanir og fyrirtæki
  • Sjálfvirknivæðing vinnuferla, skjölun og uppsetning á stafrænum innviðum
  • Samstarf við fjölbreytt teymi og viðskiptavini í þróun nýrra lausna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • A.m.k. fimm ára reynsla af hugbúnaðarþróun
  • Reynsla í C# og .Net Core kostur
  • Reynsla af Microsoft SQL Server gagnagrunnum kostur
  • Áhugi á að tileinka sér nýja tækni og þróast í starfi
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, sjálfstæði og drifkraftur
  • Mjög góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli

Fríðindi í starfi

  • Kaupréttaráætlun
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Mötuneyti
  • Öflugt starfsmannafélag

Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

– Umsóknarfrestur er til og með 21. október 2024

– Öllum umsóknum þarf að fylgja ferilskrá

– Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál

– Öllum umsóknum verður svarað